Fjölmenningardeiglan: frásagnir pólskra Íslendinga
Fjölmenningardeiglan - pólskar rætur og daglegt líf á Íslandi er ný þjóðháttasöfnun um reynslu pólskra Ísendinga af íslensku samfélagi. Markmið þjóðháttasöfnunar Þjóðminjasafnsins er að safna upplýsingum um siði og venjur, hátíðisdaga og daglegt líf í íslensku samfélagi fyrir komandi kynslóðir.
Þjóðháttasafnið telur mikilvægt að reynsla fyrstu kynslóða pólskra Íslendinga falli ekki í gleymskunnar dá og hefur opnað spurningaskrá með það að markmiði að tilverði heimildir um:
- reynslu pólskra Íslendinga af íslensku samfélagi
- daglegt líf þeirra hér á landi
- framlag þeirra til íslensks samfélags
Söfnunin felst í spurningarskrá annars vegar og hins vegar í því að þau sem vilja geta afhent Þjóðminjasafninu ljósmyndir, hvort sem er stafrænar eða framkallaðar, lífi sínu á Íslandi.
Helga Vollertsen sérfræðingur þjóðhátta hefur veg og vanda af verkefninu.
>>> Hér má nálgast spurningaskrána og nánari upplýsingar
Verkefnið er unnið með styrk frá Uppbyggingarsjóði EES/EEA and Norway Grants og unnið í samstarfi við Borgarsögusafnið í Varsjá.