Kastalinn í Sviðnum
ÁGÚST 2018
Ljósmyndari Hjálmar R. Bárðarson
HRB1-1991-374-5
Þann 8. júní síðastliðinn voru 100 ár síðan Hjálmar R. Bárðarson ljósmyndari og verkfræðingur fæddist. Að því tilefni verður sýning á úrvali litmynda hans á Veggnum í Þjóðminjasafni Íslands. Hjálmar arfleiddi Ljósmyndasafn Íslands í Þjóðminjasafni að myndasafni sínu sem telur um 360.000 myndir. Árið 2011 var haldin yfirlitssýning í Myndasal safnsins á svarthvítum myndum hans.
Filmusafn Hjálmars var mjög vel skráð, því vitum við bæði hvar og hvenær myndir hans voru teknar. Þann 11. ágúst 1991 var Hjálmar staddur í Sviðnum á Breiðafirði, eyjaklasa sem tilheyrir svokölluðum Inneyjum. Þar myndaði hann þessa manngengu vörðu á svokölluðum Kastala í Bæjareynni í Sviðnum, en hún var upphaflega byggð af Ólafi Teitssyni (1810-1892) bónda í eyjunni. Úr vörðunni var hægt að sjá yfir alla landareign Sviðnubónda.1) Þá eru heimildir fyrir því að hún hafi einnig verið notuð sem þurrkhjallur.2)
Varðan sést á einni mynd frá fyrri hluta síðustu aldar (SæG2-6). Þar sjást í forgrunni bátar með seglum í lendingunni fyrir neðan, sem þótti afar góð.
Örnefnið Sviðnur þykir ef til vill sérstakt. Nokkrar kenningar eru um hvernig nafnið er til komið. Talið er að á eyjunum hafi verið þéttur skógur, sem kveikt hafi verið í til að koma fyrir bæjarhúsum og beitilöndum. Eldurinn hafi farið úr böndunum og af því dragi eyjarnar nafn sitt. Þá er tilgáta um að þær beri nafn sitt af saltbrennslu. Þriðja tilgátan er að eyjarnar dragi nafn sitt af fiskimiði suður af eyjunum sem kallast Svið. Sú skýring hefur gengið á milli ábúenda eyjunnar.3) Byggð lagðist af í eyjunum árið 1956, er bæjarhúsin brunnu.
Þess má geta að varðan sést í verki Baltasars Samper í Flateyjarkirkju á Breiðafirði.
Kristín Halla Baldvinsdóttir
1) Landið þitt Ísland S-T, bls. 239.
2) Árbók Ferðafélags Íslands 1989, bls. 191.
3) Lesbók Morgunblaðsins 25. september 1977, bls. 6.