Sýningar framundan

Lögréttutjöldin

  • 17.6.2024 - 17.6.2025, Hornið - Þjóðminjasafnið Suðurgötu

Í tilefni 80 ára afmælishátíðar lýðveldis á Íslandi mun Þjóðminjasafn Íslands í samstarfi við Þjóðgarðinn á Þingvöllum sýna tjöld sem eru talin hafa hangið í Lögréttuhúsinu á Þingvöllum á síðari hluta 18. aldar. 

Hin svokölluðu Lögréttutjöld voru seld skoskum ferðamanni að nafni Robert Mackay Smith árið 1858 en eru nú í eigu Þjóðminjasafns Skotlands. Þegar þau voru seld úr landi höfðu þau verið á Bessastöðum í þó nokkurn tíma.

Lögréttutjöldin eru í raun tvö mislöng rúmtjöld úr ull og líni sem hafa verið saumuð saman eftir langhliðinni. Þau eru skreytt með útsaumi og áletrunum. Á öðru eru spakmæli en brot úr passíusálmi eftir Hallgrím Pétursson á hinu.

Lögréttutjöldin eru fengin að láni hjá Þjóðminjasafni Skota. Sýningin verður sett upp í Horninu og mun standa í eitt ár. 


Nms