Ekki snerta-inngangur
Ekki snerta jörðina
Leikir 10 ára barna
Verið velkomin á heimasíðu farandsýningarinnar Ekki snerta jörðina! Leikir 10 ára barna.
Sýningin er afrakstur rannsóknar um leiki 10 ára barna á Íslandi veturinn 2009-2010. Hér má fá nánari upplýsingar um rannsóknina og sýninguna. Einnig er skrá yfir leiki, bæði þá sem voru vinsælastir hjá krökkunum sem tóku þátt í rannsókninni og nokkra skemmtilega gamla leiki. Í kassanum „fyrir kennara“ má finna verkefni og fleira sem kennarar geta nýtt við kennslu í tengslum við leiki barna fyrr og nú.